Herrakvöld 2020

Herrakvöld Reynis fór fram laugardaginn 29.febrúar. Uppselt var á viðburðinn þar sem 160 herrar skemmtu sér vel, nutu góðra veitinga og gleðin skein úr hverju andliti. Knattspyrnudeildin vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til Magnúsar Þórissonar á Réttinum, stuðningur hans við kvöldið er ómetanlegur. Þökkum öllum þeim sem mættu og styrktu okkur kærlega fyrir komuna.

Knattspyrnufélagið Reynir Sandgerði

Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.