Knattspyrnudeildin kynnti nýtt fyrirkomulag árskorta núna á laugardaginn 14. febrúar þegar boðið var í kaffi og spjall í Reynisheimilinu.
Nýtt fyrirkomulag má kynna sér á vefsíðunni Stubbur eða stubb.is þar sem leitað er eftir Reynisfélaginu. Í boði eru þrjár áskriftarleiðir en pörum gefst enn betra tilboð ef báðir aðilar eru skráðir sem bakhjarlar í áskrift. Bakhjarlar fá kortið sitt í símann sinn og því þarf ekki lengur að muna eftir plastkortinu á leikjum.
Þeir bakhjarlar og stuðningsmenn sem hafa átt stuðningsmannakort hafa tækifæri á að halda sömu númerum og áður, m.a. vegna happdrættis í leikhlé í sumar.
Við hvetjum félaga til þess að kynna sér þetta nýja fyrirkomulag og leggjast á árar með okkur í félaginu.
Ef félagar lenda í vandræðum er hægt að vera í sambandi við okkur, m.a. með því að senda fyrirspurn á netfangið reynir@knattspyrna.is.

