Stjórn Körfuknattleiksdeildar Reynis 2021

Áfram Reynir!

Stjórn körfuknattleiksdeildar Reynis skipa fjórir aðilar; formaður, varaformaður, gjaldkeri og ritari.

Auk stjórnar kemur fjöldinn allur af sjálfboðaliðum að starfinu á ári hverju.

Sveinn Hans Gíslason
Formaður

Jón Þór Jónsson Hansen
Varaformaður

Helga Hrönn Ólafsdóttir
Gjaldkeri

Petra Wíum Sveinsdóttir
Ritari

Knattspyrnufélagið Reynir Sandgerði

Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.