Þjálfarateymi Knattspyrnudeildar Reynis 2021-2022

Ray A. Jónsson & Alexander Magnússon

Ray Anthony Jónsson tók við meistaraflokk Reynis eftir tímabilið 2022. Honum til aðstoðar er Alexander Magnússon en þeir félagar hafa unnið saman áður hjá sameiginlegum 2. flokki Njarðvíkur/Grindavíkur.

Ray Anthony Jónsson
Þjálfari

Alexander Magnússon
Aðstoðar- og styrktarþjálfari

Knattspyrnufélagið Reynir Sandgerði

Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.