Merki félagsins

Um merki Reynis

Heiðursfélagi Knattspyrnufélags Reynis, Sveinn Pálsson, teiknaði upp merki félagsins í kringum 1960 á blað í eldhúsinu hjá sér og hefur verið notað allar götur síðan. Hér undir er hægt að nálgast merki félagsins.

Knattspyrnufélagið Reynir Sandgerði

Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.