Knattspyrna

Nýjustu fréttir frá Knattspyrnudeild Reynis

Meistaraflokkur karla 2021

Meistaraflokkur knattspyrnudeildar Reynis hafnaði í 2. sæti 3. deildar tímabilið 2020 og tekur því þátt í Íslandsmótinu í 2. deild karla tímabilið 2021.

Yngri flokkar Reynis 2021 – 2022

Knattspyrnudeild Reynis er í samstarfi við Knattspyrnufélagið Víði í Garði um yngri flokka og leika undir merkjum Reynis/Víðis. Einnig er deildirnar í samstafi við Keflavík í yngri flokkum kvenna en þær leika undir merkjum RKV. Í 3. flokki kvenna er auk þess samstarf við UMFG. Í 2. flokki karla og kvenna er deildin í samstarfi við Víði og Keflavík og leikið er undir nafninu Keflavík/Reynir/Víðir

Lífið og félagið

Stuðningsaðilar

Knattspyrnufélagið Reynir Sandgerði

Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.