Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Reynis fór fram þriðjudaginn 8. júní sl. kl 20:00 í Reynisheimilinu. Til fundarins var boðað með viku fyrir var og sátu 15 félagar fundinn.
Sigursveinn Bjarni Jónsson setti fundinn f.h. þá sitjandi aðalstjórnar og lagði til að hann sjálfur yrði fundarstjóri og Ástrós Jónsdóttir fundarritari. Voru báðar tillögur samþykktar með lófaklappi. Fundarstjóri lagði til að liðir 11, 12 og 13 í dagskrá fundarins verði færðir fram og var það samþykkt. Fram kom tillaga að stjórn í heild sinni:
Ólafur Þór Ólafsson, formaður
Árni Sigurpálsson, gjaldkeri
Hannes Jón Jónsson, ritari
Jóhann Jóhannsson, varamaður
Stefán Þór Sigurbjörnsson, varamaður
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri lagði til að fundinum yrði frestað og verði framhaldið eigi síðar en 30. nóvember 2021. Samþykkt samhljóða.
Fundinum var slitið kl 20:20